Hver erum við?

Við- það eru Jóhann A. Samúelsson, fæddur og uppalin frá Barðaströndinni á Vestfjörðum, þar sem var alltaf fullt af dýrum- hestar, beljur, kindur, hænur, hundar, kettir og stundum selkópur og fleira ;)- þannig að upplagt að koma sér aftur út í sveit og vinna með dýrin í kringum sig.

Í millitíðinni keyrði hann flutningabíla og bjó á Hornafirði. 

Franziska Solte er frá þýskalandi og fékk sinn fyrsta íslenska hest 14 ára. (Sú meri heitir Ginning frá bænum Selá, sem var í Eyjafirðinum og hún er í dag 31 vetra..). Hún var svo með hestabæ með íslenska hesta í 16 ár, með reiðskóla, tamningar, fóðrun og ræktun. Hún er "Pferdewirtschaftsmeister"- "meistari í hestabúfræði" og IPZV Trainer B- "reiðkennari B" og hefur komið til Íslands síðan 1999 til að temja, þjálfa og járna hesta. Á bænum var alltaf fullt af öðrum dýrum líka og tók hún að sér að fóstra og finna ný heimili handa ótal hundum, köttum, kanínum, naggrísum...

Svo var loksins komið að því í September 2020 að hætta að vera á stanslausu flakki á milli landa og hún flutti alveg til Íslands. 

2020 bættist svo líka önnur ástæða flutnings við hjá okkur- Júlian Ragnar- og ætlar hann að verða aðal hunda- og hestatemjari  ;).