Á Jórunnarstöðum snýst mikið í kringum hesta!
Það er gerði og hringgerði og ég er að taka hross í tamningu og þjálfun. Ég hef mikla reynslu af frumtamningum, reyndar búin að temja í mörg ár tryppi á Íslandi og í þýskalandi og oft tekið að mér "erfiðu" hlutverkin. Mér finnst gaman að sjá áranginn á hesti sem reyndist kannski erfiður eða þyrfti bara aðra aðferð eða meiri tíma. Mér finnst mikilvægt að fá hrossið til þess að vinna með mér og hafa gaman og - mikilvægast- treysta mér. Svo er auðvitað líka gaman að þjálfa, gangsetja eða byggja aftur upp vist þjálfunarstig.
Ég býð líka upp á reiðkennslu, annaðhvort á þínum hesti eða einum af okkar þægu kennsluhestunum.
Við tökum hross í hagabeit og fóðrun. Ef þú ert ennþá að leita að rétta hestinum fyrir þig þá eigum við stundum hross til sölu. Við bjóðum einnig upp á að járna og komum auðvitað líka til þín.
Hafðu samband ef þig vantar aðstoð með hestinn þinn!
Diese Webseite wurde mit Jimdo Creator erstellt! Jetzt kostenlos registrieren auf https://de.jimdo.com