Hér á Jórunnarstöðum hefur verið hundahótel áður og við erum búin að endurvekja það. Við erum með rúmgóðar stíur sem eru innréttað með teppi og bæli, en við mælum með að koma með allt sem hundurinn þekkir að heiman- bæli, kodda eða teppi, fóður, matardallar, ól og kannski leikföng sem honum finnst skemmtilegast, svo hundurinn þarf sem minnst að venjast nýju umhverfinu.
Hundarnir fá hreyfingu nokkur sinnum á dag í göngutúrum og útigerðum, líka í samræmi við eigendan og eftir því sem hundurinn þekkir.
Hundurinn verður að vera bólusettur og ormahreinsaður þegar hann kemur til okkar.
Við erum með 4 útigerði allt árið og líka skemmu á sumrin til að leika sér í.
Hundarnir geta farið út í gerðin saman með öðrum eða einn og sér, bara eins og hentar fyrir hvern og einn.
Inniaðstaðan er með rúmgóðar stíur fyrir hvern og einn hund en í þeim stærstu geta líka verið 2 eða 3 saman fra sama eigenda.
Verðið fyrir sólarhringinn er 3500,-kr á hund, 6000,-kr ef það eru 2 saman í stíu og 7500,-kr ef það eru 3 saman í stíu.
Pössun bara yfir daginn 2500,-kr.
Innifalið í verðinu eru 1-2 göngutúrar á dag og auðvitað öll umhugsunin og líka sérþarfir eins og lyfjagjöf en eigendurnir eru beðnir um að koma með mat sjálfir. Við bjóðum upp á fóður fyrir
500kr/ sólarhring aukalega.
Komu- og brottfaratíma eru eftir samkomulagi.
Ef þörf er á afpöntun eða breytingu pantaða tímans er það hægt með 48 tíma fyrirvara.
Verið velkomin! :)
Diese Webseite wurde mit Jimdo Creator erstellt! Jetzt kostenlos registrieren auf https://de.jimdo.com